Ég er byrjuð að skrappa allt árið 2007 og setja skipulega í albúm. Þessar myndir voru teknar í febrúar þegar Björk kom í heimsókn með Emblu Ósk. Við fórum með krakkana með okkur í Janus og keyptum sitthvora húfuna á þau og voru þau svo sæt saman með eins ullarhúfur.
Á fyrri síðunni er Daníel búin að koma Emblu Ósk fyrir í baby born kerru og er textinn:
Kolbrún Ýr notaði Daníel Örn sem dúkku. Svo þegar Embla Ósk kom í heimsókn var hún sett í dúkkukerruna enda minni en Daníel.
Allt sem ég notaði á síðunni keypti ég hjá Sesselju, Chipboard og rub-on frá Fancy Pants. Pp frá chatterbox og er úr línu sem heitir scrapbook walls. Blómin eru frá Prima. Pp og blómin voru úr kössunum af gamla lagernum og hefði ég sko alveg getað keypt meira en einhverjar hömlur verður maður að hafa.
En ég held að ég verði að fara að fjárfesta í almennilegum skanna og byrja að skanna og skeyta saman síðurnar því að taka myndir af þeim gefur bara alls ekki góða „mynd“ af þeim.
4 comments:
Æðislegar síður og flottur pp:O)
Æðislegar síður hjá þér ;Þ
Æðislegar :) þú dugleg að skrappa með skipulag, það er sko eitthvað sem ég verða ð fara að gera !!!!!!
ofsalega sæt opna!! blómin eru geggjuð.
Sendu inn athugasemd