Þessa síðu gerði ég fyrir áskorun sem Hildur Ýr setti á skissubloggið sitt (linkur hér til hliðar ef þið viljið kíkja á skissurnar hennar).
Myndin er af Daníel opna afmælisgjöfina sína þegar hann varð tveggja ára og Kolbrún tók náttúrulega þátt í því. Síðan átti því að vera strákaleg en vildi samt tengja rauða litinn í kassanum utan af bílnum einhvern veginn. Blómin og blingið er sem sagt til þess. Þetta er í fyrsta skipti sem ég nota svona staka bling steina og var það frekar mikil nákvæmnisvinna og erfið í þokkabót. Ég byrjaði á því að mæla út hvar steinarnir áttu að vera og setti síðan eina límdoppu undir hvern stein. Kemur ótrúlega flott út en það sést ekki almennilega á myndinni hér fyrir ofan. Steinarnir eru sem sagt rauðir í stíl við bílinn og blómin.
PP er frá K&Company, blómin eru prima, stimpillinn undir þeim er Fancy Pants, blingið fékk ég í Rak-i og titillinn er heimagert rub-on.
5 comments:
Æðisleg síða hjá þér
Mjög flott síða hjá þér og blómin koma vel út. Frændsystkinasíðan er geggjuð og skissan þín rosa flott líka :)
flott síða!
Æðisleg :)
Sendu inn athugasemd