1. Um hvað var síðasta síðan sem þú gerðir?
Síðasta síðan sem ég gerði er um börnin mín tvö og tvær frænkur. Við mömmurnar erum jafngamlar og erum duglegar að hittast og leyfa krökkunum að leika. Síðan er hér fyrir neðan en það vantar hinn helminginn. Síðan er sem sagt hluti af opnu.
2. Hvaða skrappara lítur þú upp til og af hverju?
Ég er ekki mikið að skoða hvað erlendir skrapparar eru að gera en það er ein íslensk sem mér finnst extra góð. Hún gerir fallegar síður, er hugmyndarík og virðist vita allt í skrappinu. Þessi íslenski skrappari heitir Þórunn.
3. Hvað hefur þú ekki gert á skrapp síðu en langar að prufa?
Ég prófa nú eiginlega allt nýtt sem ég hef ekki prófað áður en einhvern veginn hef ég aldrei gert síðu með falið tags. Ætti kannski að gera það.
4. Hvaða tími dagsins hentar þér best til að skrappa?
Ég ætti náttúrulega að nota daginn frá 8 - 16 þegar krakkarnir eru á leikskólanum en virðist skrappa meira og betur á kvöldin.
5. Settu link inn á 2 blogg sem þú heimsækir reglulega.
Skissubloggið hennar Þórunnar - http://gettinsketchy.blogspot.com/
Skissubloggið hennar Beggu - http://stjani.magnus.is/sketches1.htm
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd